„Þið vitið fullkomlega hvað er í pakkanum“

„Vitanlega er Evr­ópusambandið ekki lokaður pakki. Þið vitið hvað þið væruð að fara út í. Og ef þið eruð ekki reiðubúin til þess, haldið ykkur þá fyrir utan sambandið. Það er það bezta sem þið getið gert,“ sagði Uffe-Ellemann heitinn Jensen, fyrrverandi utanríkisráðherra Danmerkur, í viðtali við mbl.is í marz 2017 en hann var mikill stuðningsmaður þess að Ísland gengi í Evrópusambandið.